3.1.2010 | 17:43
Þingmaður fer mikinn á blogginu
Stjórnarþingmaðurinn Ólína Þorvarðardóttir byrjar árið með skrautlegum skrifum á blogg sitt.
Á fyrsta degi ársins skrifar hún pistil þar sem hún setur fram þá skoðun að kjörnir fulltrúar á Alþingi séu ekki fulltrúar í hefðbundnum skilningi heldur einhverskonar tilsjónarmenn sem þurfi að huga að fleiru en "þeim tilfinningum almennings sem við getum kallað þjóðarvilja". Bítur hún svo höfuðið af skömminni með því að setja fram staðhæfingar máli sínu til "stuðnings" sem bera vott um vanþekkingu bæði á stjórnskipan í öðrum löndum og íslenskum lögum (næst síðasta efnisgrein) sem er fullkomlega óboðleg í fari kjörins fulltrúa, hvað þá tilsjónarmanns.
Á öðrum degi ársins ritar hún svo annan pistil og barmar sér yfir því að hafa fengið tölvupóst frá reiðum kjósendum vegna þess hvernig hún greiddi atkvæði í Icesave-málinu. Gengur hún svo langt að tala um hermdarráðstöfun í athugasemd við færsluna (2. athugasemd hennar sjálfrar við færsluna - mjög fróðleg). Ásakaði hún Indefence-hópinn um að standa að baki "hermdarráðstöfununum".
Við færsluna gerir einn meðlimur Indefence, Ólafur Elíasson, athugasemd og bendir henni á að hópurinn standi ekki að baki póstsendingunum og aðrir gera athugasendir þar sem fram kemur hverjir eigi frumkvæði að sendingunum en þeir aðilar eru ekki meðlimir Indefence. Segist Ólafur yfirleitt ekki hafa haft vitneskju um að þær væru í gangi. Ólína svarar honum og segir það ljóst að einhverjir sendendur hafi ranglega ályktað að það væru Indefence-hópurinn væri að hvetja til sendinganna og því verði hópurinn að senda frá sér opinbera yfirlýsingu þess efnis að þau hvetji ekki til þessara aðgerða. Er vart hægt að skilja orð hennar öðruvísi en svo að henni þyki hópurinn hafa hegðað sér að einhverju marki með ámælisverðum hætti þrátt fyrir... allt.
Á þriðja degi ársins rita þingmaðurinn svo færslu sem hún kýs að gefa yfirskriftina "Indefence sver af sér..." sem er út af fyrir sig undarleg miðað við málsatvik. Þingmanninum hafði verið sýnt fram á að ásakanir hennar í garð hópsins voru rakalausar frá upphafi og þegar alls engin rök benda til sektar þurfa menn ekki að grípa til svardaga. Ekki örlar á afsökunarbeiðni í pistli þingmannsins þótt hún segi það sjálf að það komi sér ekki vel fyrir samtök á borð við Indefnence að vera orðuð við "hefndaraðgerðir" af þessu tagi.
Það gæti ekki hver sem er byrjað árið á að lýsa sig sérlega til þess fallna að hafa tilsjón með fullorðnu fólki og vera svo strax á þriðja degi orðin ber að hroka, fáfræði, fljótfærni og smásálarhætti.
Fyrir mitt leiti frábið ég mér tilsjón Ólínu Þorvarðardóttur.
|
Kannast ekki við fjöldapóst |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook


Athugasemdir
Ég segi pass á handleiðslu hennar líka. Það var hún sem orðaði þá við hermdaraðgerðir, og hún ein, svo þá viðurkennir hún væntanlega að hún hafi ætlað sér það til að koma samtökunum illa.
Annars man ég ekki eftir neinu embætti eða stöðu á hennar ferli, þar sem ekki hefur logað í illdeilum vegna hennar. Hún hefur þó ekki tekið hinti, eins og menn segja.
Jón Steinar Ragnarsson, 3.1.2010 kl. 18:00
Mér finnst þetta bara til skammar að hún skuli bendla samtök við einhverja aðgerð sem var ákveðin af hóp á facebook, síðan að þegar hún fær vitneskju um það að þetta var hópur á facebook þá gleypir hún ekki þetta stolt sitt og biðst fyrirgefningar á rangfærslunni sinni.
Mér fannst hún tilgerðarleg þegar Alþingi var að fara yfir Icesave og með hræðilega ræðu og ekki skánar álitið mitt á henni núna þegar að hún viðurkennir ekki eigin sök. Svo voru þessi fjöldabréf hennar mjög svo saklaus með innihaldinu "ég kýs þig ekki, þú kaust með icesave" svo ég skil heldur ekkert í þessari athyglissýki í henni að væla í mbl.
Jón, 3.1.2010 kl. 18:29
Gamall samstarfsmaður hennar lýsti henni svona í mín eyru: ef Ólína hefur tvær leiðir til að leysa mál, þá velur hún undantekningarlaust þá leiðina sem tryggir henni rifrildi og átök.
Baldur Hermannsson, 3.1.2010 kl. 18:58
Síðustu þingkosningar skiluðu alls kyns undarlegu fólki inn á Alþingi, fólki sem undir engum venjulegum kringumstæðum hefði lent þar.
Hólmgeir Guðmundsson, 3.1.2010 kl. 19:36
Ólína Þorvarðardóttir er sjálfstæð og heiðarleg kona, vel innrætt og mikil baráttukona sem stendur á sínu. Hún segir meiningu sína og er blessunarlega laus við vinsældaveiðar. Það er hennar stærsti kostur.
Þessi bloggfærsla og þær athugasemdir sem hér hafa verið skrifaðar hafa ekkert þvílikt til að bera.
Þetta eru einfaldlega persónuofsóknir og ykkur sjálfum til minnkunar.
Vestfirðingur (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 23:09
Hm, eiginmaðurinn kominn á stjá.
Baldur Hermannsson, 3.1.2010 kl. 23:19
Vestfirðingur góður: Ég hef engin persónuleg kynni haft af Ólínu Þorvarðardóttur og veit ekkert um innræti hennar.
Ekki veit ég nema manneskjan sem þú lýsir leynist þarna einhverstaðar inn við bein.
Hitt veit ég hinsvegar að málflutningur hennar á opinberum vettvangi undanfarna daga hefur verið hneykslanlegur.
Hans Haraldsson, 3.1.2010 kl. 23:34
Það lýsir Baldri Hermannssyni að halda að ég sé eiginmaður Ólínu. Það er ég ekki, en ég hef lengi fylgst með henni og hennar ágætu verkum. Konan er afburðamanneskja.
Ég sé ekkert hneykslanlegt við skrif hennar að undanförnu. Hún tekur sterkt til orða og segir sína skoðun. Það er meira en þessi hræddu flokkssystkini hennar þora að gera eftir Icesave afgeiðsluna.
Hreinskilni er kostur á stjórnmálamanni, á þessum síðustu og verstu tímum.
Vestfirðingur (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 23:43
Þykir þér semsagt ekkert hneykslanlegt við að kjörinn fulltrúi tali niður til kjósenda, verði um leið ber að vanþekkingu, ófrægi menn að ósekju annað hvort í fljótfærni eða þá, sem enn verra væri, af ráðnum hug og biðjist svo ekki afsökunar þegar það kemur í ljós að ásakanirnar eiga ekki við rök að styðjast?
Mér þykir þið umburðarlynd fyrir vestan.
Hans Haraldsson, 3.1.2010 kl. 23:51
Grunuðum fer fækkandi. Alveg ofan í fjölskyldustærð. IP tala "Vestfirðings" kemur úr tölvu á HEIMILI Ólínu Þorvarðardóttur.
Ég hélt að hún væri klókari en þetta.
Tölvunörd (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 02:26
Það lýsir eiginmanninum að skrifa hér undir dulnefni og verja fautaskap frúarinnar. Hún hefur ekki kennt honum að skammast sín.
Baldur Hermannsson, 4.1.2010 kl. 07:01
Ég fordæmi framkomu Ólínu og ég er Ísfirðingur.
Theódór Norðkvist (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 17:34
Nú þarna sér maður þá Vestfirðing sem þorir að koma fram undir nafni. Þeir eru þá ekki allir skriðnir ofan í rottuholurnar.
Baldur Hermannsson, 4.1.2010 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.