Blaðurpólitík

Íslenskir pólitíkusar leggja sig alltaf fram um að styggja sem fæsta. Sem dæmi má nefna ójafnaðarsirkusinn skemmtilega í síðustu kosningabaráttu. Þáverandi stjórnarandstaða hamraði stöðugt á því að ójöfnuður hefði aukist og það var alveg hárrétt hjá þeim. Munurinn á milli ríkustu og fátækustu einstaklingana á Íslandi hefur ekki verið jafn mikill a.m.k frá því fyrir stríð enda aldrei verið jafn ríkir einstaklingar á landinu og núna. Þáverandi stjórnarflokkar svöruðu þá alltaf með að benda á að allir hópar samfélagsins hefðu notið mikillar kaupmáttaraukningar sem er alveg hárrétt líka. Flestallir þjóðfélagshópar njóta betri kjara núna en nokkurntíman fyrr.  

Í skynsömu samfélagi hefði næsta skref verið umræða um það hvort væri æskilegt/æskilegra: meira fyrir alla en mismikið þó, eða að fólk nyti verri kjara en líkari. En þannig þróaðist umræðan ekki. Í staðinn gjammaði stjórnarandstaðan sífellt: ójöfnuður, ójöfnuður en stjórnarflokkarnir: kaupmáttaraukning, kaupmáttaraukning eins og um andstæða hluti væri að ræða. Þannig hafa þeir líklega vonast til að styggja engan. Þetta þótti þeim betra en að ræða hlutina hreinskilnislega og af viti.

Svipað virðist upp á teningnum með byggðaþróun. Það er líklegt að flestir stjórnmálmenn séu búnir að sætta sig við það að sjávarþorp á borð við Flateyri eru líklega dauðadæmd ef ekki koma til meiriháttar ríkisstyrkir í formi einkakaupréttar á kvóta (byggðakvóta) eða beinna fjárframlaga af skattfé. Það virðist líka (sem betur fer) nokkuð augljóst að stjórnin ætlar ekki að fara þá leið. Á sama tíma virðist hún ekki þora að setja fram afstöðu sína skýrt þótt að það sé hægt að verja hana gildum rökum, t.d með því að benda á það að við (eins og mörg önnur lönd) höfum áður reynt að sporna gegn eðlilegri byggðaþróun og sitjum nú uppi með úreltan og fokdýrann landbúnað fyrir vikið. Eða þá bara það að fólk settist ekki að á Flateyri til að byrja með vegna þess að það langaði til þess heldur vegna þess að þar var vinnan. Núna er vinnan annarstaðar. Slík hreinskilni væri ekki bara virðingarverðari heldur líka sanngjarnari gagnvart fólkinu sem býr á Flateyri (eða sambærilegum stöðum) og gæti verið að hugsa  um að fjárfesta í fasteignum en hún virðist kalla á meiri kjark en íslenskir stjórnmálamenn búa yfir.


mbl.is Ráðherrar ræða við heimamenn á Vestfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband